Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   mið 13. maí 2026 07:35
Elvar Geir Magnússon
Murphy býst við að leiðir Liverpool og Slot muni skilja
Upphafið að endalokunum hjá Slot með Liverpool?
Upphafið að endalokunum hjá Slot með Liverpool?
Mynd: EPA
Danny Murphy.
Danny Murphy.
Mynd: EPA
Arne Slot stjóri Liverpool hefur misst trú margra stuðningsmanna liðsins eftir erfitt gengi á tímabilinu. Sparkspekingurinn Danny Murphy telur að atburðarásin endi með því að leiðir Slot og Liverpool muni skilja innan nokkurra mánaða.

Eigendur Liverpool þurfa að ákveða hvort félagið ætli að leggja áframhaldandi traust á Slot eða skipta um stjóra. Hjá stuðningsmönnum Liverpool er óánægjan vaxandi og það var augljóst þegar baulað var á liðið eftir jafntefli gegn Chelsea á Anfield.

Nafn Xabi Alonso er á allra vörum en þessi fyrrum miðjumaður Liverpool er vinsæll meðal stuðningsmanna. Hann gerði Bayer Leverkusen að þýskum meisturum áður en hann átti stutta og erfiða stjóratíð hjá Real Madrid.

„Það sem Slot er að glíma við er að þegar stuðningsmenn missa trúna er erfitt að vinna þá til baka nema þú vinnir hvern einasta leik. Og ekki bara vinnur heldur gerir það á þann hátt sem sæmir Liverpool," segir Murphy sem er fyrrum leikmaður Liverpool.

„Á þessu tímabili hefur maður séð leik Liverpool stjórnað af því hvernig andstæðingurinn spilar. Á heimavelli býst maður við að sjá Liverpool ráðast á mótherja sína."

Murphy telur að Alonso yrði góður kostur fyrir Liverpool ef Slot verður látinn fara en efstur á óskalista hans er þó Luis Enrique, sem vann Meistaradeildina með PSG í fyrra og gæti endurtekið leikinn í ár.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner