Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 13. júní 2022 06:31
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Heimasíða Benfica 
Benfica staðfestir samkomulag við Liverpool um Nunez
Darwin Nunez fer í læknisskoðun í dag
Darwin Nunez fer í læknisskoðun í dag
Mynd: EPA
Portúgalska félagið Benfica hefur staðfest samkomulag við Liverpool um úrúgvæska framherjann Darwin Nunez en yfirlýsingin var birt á heimasíðu félagsins í nótt.

Félögin hafa verið í viðræðum um Nunez síðustu daga en seint í nótt náðu þau saman um kaupverð.

Liverpool borgar 64 milljónir punda fyrir Nunez en það gæti hækkað upp í 85 milljónir punda ef ákveðnum skilyrðum er mætt.

Nunez, sem er 22 ára gamall, heldur til Englands í dag og mun gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir sex ára samning við félagið.

Úrúgvæinn skoraði 34 mörk í 41 leik fyrir Benfica á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner