Christhoper Aurier, bróðir Serge Aurier varnarmanns Tottenham, fannst látinn í morgun.
Christopher fannst látinn fyrir utan næturklúbb í Toulouse í Frakklandi en svo virðist sem hann hafi verið skotinn til bana.
Franskir fjölmiðlar greina frá því að ekki sé búið að hafa hendur í hári þess sem var að verki og lögregla leiti nú byssumannsins.

Christopher var 26 ára gamall en hann spilaði með Toulouse Rodeo í fimmtu efstu deild í Frakklandi.
Serge Aurier er fastamaður í liði Tottenham en hann spilaði í sigri á Arsenal í Lundúnarslag í gær.
Athugasemdir