Twitter hefur beðist afsökunar á færslu sem birtist á opinberum aðgangi samfélagsmiðilsins í þessari viku.
@TwitterUK, sem er opinber aðgangur Twitter í Bretlandi, gerði þar grín að Phil Jones varnarmanni Manchester United.
@TwitterUK, sem er opinber aðgangur Twitter í Bretlandi, gerði þar grín að Phil Jones varnarmanni Manchester United.
„Nefnið betri varnarmann en Phil Jones (e: "Name a better defender than Phil Jones)," sagði í færslu Twitter í fyrrakvöld.
Twitter hefur nú eytt færslunni og beðið Phil Jones afsökunar.
Jones hefur ekki spilað með Manchester United síðan fótboltinn byrjaði aftur að rúlla í júní en hann hefur verið mikið meiddur undanfarin ár.
Athugasemdir