13.08.26 - 19:26
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Sigur Víkinga dugði ekki til að komast áfram

Víkingar fara í umspil Sambandsdeildarinnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leiknum í kvöld

Víkingur R. 3 - 2 Thun (3-5, samanlagt)
0-1 Fabio Fehr ('10 )
1-1 Gylfi Þór Sigurðsson ('16 )
1-2 Brighton Labeau ('35 )
2-2 Stígur Diljan Þórðarson ('37 )
3-2 Valdimar Þór Ingimundarson ('55 )
Lestu um leikinn
0-1 Fabio Fehr ('10 )
1-1 Gylfi Þór Sigurðsson ('16 )
1-2 Brighton Labeau ('35 )
2-2 Stígur Diljan Þórðarson ('37 )
3-2 Valdimar Þór Ingimundarson ('55 )
Lestu um leikinn
Íslandsmeistarar Víkings eru úr leik í forkeppni Evrópudeildarinnar þrátt fyrir 3-2 sigur á svissneska liðinu Thun í Víkinni í kvöld.
Víkingar töpuðu fyrri leiknum 3-0 í Sviss og þurftu því á kraftaverki að halda til að snúa einvíginu sér í vil.
Þeir byrjuðu af krafti en fengu þungt högg á tíundu mínútu þegar Fabio Fehr kom gestunum yfir. Thun tók innkast á vallarhelmingi Víkings, lék boltanum hratt á milli manna og Nils Reichmuth stakk honum inn fyrir á Fehr sem kláraði auðveldlega fram hjá Aroni Snæ Friðrikssyni.
Gylfi Þór Sigurðsson svaraði aðeins sex mínútum síðar. Hann lék skemmtilega þríhyrning við Viktor Örlyg Andrason og skaut boltanum snyrtilega í vinstra hornið frá vítateigsboganum.
Mikil barátta var í Víkingum sem komu sér í nokkrar álitlegar stöður. Þeir fengu þó aðra kalda gusu þegar Brighton Labeau skoraði annað mark Thun.
Gestirnir tóku hornspyrnu stutt og sendu síðan boltann á fjærstöngina þar sem Labeau reis hæst og skallaði yfir Aron Snæ.
Víkingar voru aðeins tæpar tvær mínútur að svara. Ármann Ingi Finnbogason, sem var að byrja sinn fyrsta Evrópuleik, átti góða rispu áður en boltinn barst til Karls Friðleifs Gunnarssonar. Hann sendi frábærlega fyrir á Stíg Diljan Þórðarson sem stangaði boltann í vinstra hornið.
Heimamenn komust síðan yfir snemma í síðari hálfleik. Ármann Ingi tók annan frábæran sprett upp vænginn, lék á varnarmann og komst inn í teiginn. Steffen varði skot hans úr þröngu færi en Valdimar Þór Ingimundarson var mættur á frákastið og stýrði boltanum í opið mark.
Víkingar sóttu stíft á lokakaflanum. Davíð Örn Atlason skaut rétt fram hjá og Gylfi Þór komst í dauðafæri en Daði Berg Jónsson varð fyrir skoti hans. Helgi Guðjónsson fékk einnig gott færi en Steffen varði vel af stuttu færi og þá björguðu gestirnir á línu.
Heppnin ekki með Víkingum sem unnu leikinn en það dugði þó skammt eftir tapið í Sviss og Thun vann einvígið samanlagt, 5-3.
Thun fer áfram í umspil Evrópudeildarinnar en Víkingar halda yfir í umspil Sambandsdeildarinnar. Þar mæta þeir annað hvort Borac eða Vitebsk.
Víkingar mættu Borac í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar fyrir tveimur árum og unnu þá frábæran 2-0 sigur. Vonandi tekst þeim að endurtaka leikinn og tryggja sér sæti í deildarkeppninni.