Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 13. september 2020 17:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hólmbert fór meiddur af velli - Lenti í slæmri tæklingu
Hólmbert og Michy Batshuayi fyrir landsleik Íslands og Belgíu í síðustu viku.
Hólmbert og Michy Batshuayi fyrir landsleik Íslands og Belgíu í síðustu viku.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Hólmbert Aron Friðjónsson fór meiddur af velli í leik Álasunds og Sarpsborg sem nú stendur yfir í norsku úrvalsdeildinni.

Hólmbert fór meiddur af velli eftir slæma tæklingu innan teigs frá leikmanni Sarpsborg.

Það er vonandi að meiðsli landsliðsframherjans séu ekki alvarleg, en hann kom sterkur inn í síðasta landsliðshóp og gerir klárlega tilkall í þann næsta ef hann verður heill heilsu.

Hólmbert hefur raðað inn mörkunum í Noregi en hann er líklega á leið til Brescia í ítölsku B-deildinni.

Hér að neðan má sjá myndband af því þegar Hólmbert meiddist en það var ekki neitt dæmt á þetta.


Athugasemdir
banner
banner