Riðlakeppninni í 4. deild karla lauk í kvöld.
Það er ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni og hvenær leikið verður.
Sigurvegarar riðlana mæta liðunum sem höfnuðu í öðru sæti. KFS, Kormákur/Hvöt, Hamar og Kría unnu riðlana.
Leikið verður heima og að heiman í 8-liða úrslitum. Leikirnir fara fram 19. september og 23. september.
Liðin tvö sem komast í úrslit fara svo upp í 3. deild.
8-liða úrslitin:
Kormákur/Hvöt - KÁ
Hamar - KH
KFS - KFR
Kría - ÍH
Undanúrslitin:
KÁ / Kormákur/Hvöt - ÍH / Kría KFR /KFS - KH / Hamar
Athugasemdir