Fotbolti.net
13.09.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Benzema: Vinicius er undur

Vinicius Junior fagnaði með því að hlaupa upp í stúku

Vinicius Junior fagnaði með því að hlaupa upp í stúku

Canon

Mynd: EPA

Karim Benzema skoraði þrennu í 5-2 sigri á Celta Vigo í spænsku deildinni í gær en hann vildi hrósa Vinicius Junior sérstaklega eftir leik.
Benzema lagði upp mark Vinicius í leiknum en brasilíski sóknarmaðurinn fagnaði með því að hlaupa upp í stúku og fagna með áhorfendum.

Frakkinn var ánægður með frammistöðu Vinicius og hrósaði honum eftir leik. Vinicius er með 4 mörk í 4 leikjum og hefur þá lagt upp eitt.

„Vinicius er undur. Mér finnst gaman að spila með honum og hann hefur sýnt það að hann getur alltaf spilað með Real Madrid. Ég er ánægður fyrir hans hönd," sagði Benzema eftir leik.

Madrídingar eru á toppnum með 10 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.