Fotbolti.net
13.09.22 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sagði Muller að passa sig að senda ekki á Lewandowski

Sagði Muller að passa sig að senda ekki á Lewandowski
Canon

Mynd: EPA

Bayern Munchen fær Barcelona í heimsókn í Meistaradeildinni í kvöld.

Robert Lewandowski leikmaður Barcelona mætir þar á sinn gamla heimavöll. Hann er ótrúlegur markaskorari en hann skoraði 238 mörk í 253 leikjum í búningi Bayern. Hann er búinn að skora sex í fimm leikjum fyrir Barcelona.

Thomas Muller leikmaður Bayern spilaði með Lewandowski hjá félaginu en Sadio Mane var fenginn til félagsins frá Liverpool eftir að Lewandowski fór.

Mane og Muller eru greinilega léttir fyrir leikinn.

„Mane hefur veirð að grínast með það síðustu tíu daga að ég þurfi að passa mig á því að senda ekki óvart á Lewandowski," sagði Muller.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.