Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 13. október 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Scaloni: Messi mætir aftur í næsta mánuði
Lionel Messi er í banni
Lionel Messi er í banni
Mynd: Getty Images
Lionel Scaloni, þjálfari Argentínu, býst við Lionel Messi í næsta mánuði með landsliðinu.

Messi fékk þriggja mánaða keppnisbann með landsliðinu eftir að hann hraunaði yfir suður-ameríska knattspyrnusambandið á Copa America.

Hann klárar því bannið í næsta mánuði en Argentína gerði 2-2 jafntefli við Þýskaland í vináttuleik á dögunum og mætir þá Ekvador í dag.

„Messi er ekki með okkur þar sem hann er í banni. Sergio Aguero er ekki hérna því hann er meiddur og hann hefur ekki verið að æfa 100 prósent með Manchester City."

„Þeir verða pottþétt báðir hérna í næsta mánuði,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner