Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. október 2020 10:35
Elvar Geir Magnússon
Birkir fyrirliði gegn Belgum
Icelandair
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason og Erik Hamren sitja fyrir svörum á fréttamannafundi íslenska landsliðsins sem nú stendur yfir á Laugardalsvelli.

Birkir verður með fyrirliðabandið á morgun þegar Belgar koma í heimsókn í Þjóðadeildinni.

Birkir hefur leikið 88 landsleiki fyrir Ísland og skorað 13 mörk.

Aron Einar Gunnarsson fyrirliði er farinn til Katar og varafyrirliðinn Gylfi Þór Sigurðsson til Everton.

Sjá einnig:
Sjö leikmenn úr hópnum verða ekki með gegn Belgum

Það má búast við erfiðum leik gegn efsta liði heimslistans en við vorum einnig án fjölda lykilmanna í fyrri viðureigninni gegn Belgum, sá leikur tapaðist 5-1 í Brussel.

Ef Danmörk vinnur England annað kvöld og Ísland tapar gegn Belgíu þá fellur íslenska liðið úr A-deild Þjóðadeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner