Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 13. nóvember 2020 10:01
Magnús Már Einarsson
Hópur kvennalandsliðsins: Dagný og Rakel koma inn
Icelandair
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur valið hópinn sem mætir Slóvakíu og Ungverjalandi í undankeppni EM 2021.

Tvær breytingar eru gerðar á hópnum frá því í leiknum gegn Svíþjóð. Dagný Brynjarsdóttir og Rakel Hönnudóttir koma inn, en út fara þær Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir.

Ísland mætir Slóvakíu 26. nóvember í Senec í Slóvakíu og Ungverjalandi 1. desember í Búdapest, en þetta eru síðustu leikir liðsins í undankeppninni.

Stelpurnar eru í 2. sæti riðilsins með 13 stig eftir sex leiki, en Svíþjóð situr á toppnum með 19 stig eftir sjö leiki. Liðin í efsta sæti riðlanna fara beint áfram í lokakeppni EM ásamt þeim þremur liðum í öðru sæti með bestan árangur.

Hinar sex þjóðirnar sem enda í öðru sæti síns riðils fara í umspil um þrjú laus sæti á EM 2021. Svíþjóð er þegar búið að tryggja sér sigur í riðlinum og eru þessir leikir því mikilvægir íslenska liðinu í baráttunni um sæti á EM 2021.

Hópurinn
Sandra Sigurðardóttir | Valur | 32 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir | Fylkir | 1 leikur
Sonný Lára Þráinsdóttir | Breiðablik | 7 leikir
Barbára Sól Gísladóttir | Selfoss | 1 leikur
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | Valur | 74 leikir, 10 mörk
Elísa Viðarsdóttir | Valur | 38 leikir
Hallbera Guðný Gísladóttir | Valur | 115 leikir, 3 mörk
Ingibjörg Sigurðardóttir | Valerenga | 33 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir | Rosengard | 87 leikir, 6 mörk
Guðný Árnadóttir | Valur | 8 leikir
Anna Björk Kristjánsdóttir | Le Havre | 43 leikir
Sara Björk Gunnarsdóttir | Lyon | 134 leikir, 20 mörk
Rakel Hönnudóttir | Breiðablik | 102 leikir, 9 mörk
Alexandra Jóhannsdóttir | Breiðablik | 8 leikir, 2 mör
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir | Breiðablik | 10 leikir, 2 mörk
Dagný Brynjarsdóttir | Selfoss | 90 leikir, 29 mörk
Agla María Albertsdóttir | Breiðablik | 31 leikur, 2 mörk
Hlín Eiríksdóttir | Valur | 17 leikir, 3 mörk
Svava Rós Guðmundsdóttir | Kristianstads | 22 leikir, 1 mark
Berglind Björg Þorvaldsdóttir | Le Havre | 46 leikir, 4 mörk
Sandra María Jessen | Leverkusen | 31 leikur, 6 mörk
Sveindís Jane Jónsdóttir | Breiðablik | 3 leikir, 2 mörk
Elín Metta Jensen | Valur | 52 leikir, 16 mörk

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner