Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 13. nóvember 2020 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jimenez: Einn daginn var það Juve og hinn Man Utd
Mynd: Getty Images
Raul Jimenez var mikið orðaður við brottför frá Wolves í sumar og voru mörg félög sögð hafa áhuga á mexíkóska framherjanum.

Meðal félaga voru Manchester United og Juventus. Hann tjáði sig um sögusagnirnar í viðtali við TUDN>/I>.

„Í fríum eða þegar glugginn er opinn þá kemur nýtt lið á hverjum degi. Ég heyrði af þessu í fréttum og slúðri," sagði Jimenez.

„Einn daginn vaknaði ég og Juventus elskaði mig, annan dag var það Manchester United. Það sem ég veit er að það voru fyrirspurnir en það varð aldrei neitt nálægt samkomulagi. Ég er mjög góður hjá Wolves."
Athugasemdir
banner
banner