Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 14. janúar 2020 15:19
Magnús Már Einarsson
Tottenham getur fengið Llorente
Mynd: Getty Images
Napoli hefur boðið Tottenham að fá spænska framherjann Fernando Llorente aftur í sínar raðir.

Llorente skoraði 13 mörk í 66 leikjum með Tottenham en hann yfirgaf félagið síðastliðið sumar.

Harry Kane verður frá keppni fram í apríl vegna meiðsla og því gæti Tottenham bætt við sig framherja.

Napoli hefur boðið Llorente en samkvæmt heimildum Sky Sports er þó ólíklegt að Tottenham taki því tilboði.

Hinn 34 ára gamli Llorente hefur skorað fjögur mörk í 21 leik með Napoli á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner