Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. janúar 2021 06:00
Aksentije Milisic
Garcia sagður hafa náð samkomulagi við Barcelona
Mynd: Getty Images
Eric Garcia, varnarmaður Manchester City, er sagður hafa náð samkomulagi við Barcelona en þessu greinir Goal.com frá.

Þó að leikmaðurinn sé búinn að ná samkomulagi við klúbbinn þá á enn margt eftir að gerast svo að hann verði leikmaður liðsins.

Carles Alena fór á láni frá Barcelona og til Getafe og það spilar inn í það að Barcelona á efni á að ganga frá kaupum á Garcia.

Barcelona er að leita sér að miðverði og hefur Garcia lengi verið orðaður við félagið. Hann er uppalinn hjá Barcelona og hefur neitað að skrifa undir nýjan samning hjá City.

Barcelona er talið ætla að bjóða fimm milljónir punda í leikmanninn en samningur hans hjá City rennur út næsta sumar. Garica hefur verið hjá City síðan árið 2017.


Athugasemdir
banner
banner
banner