Það eru tveir leikir á dagskrá í ítölsku bikarkeppninni í dag.
Sæti í 8-liða úrslitum er í húfi og í fyrri leik dagsins mætast Sassuolo og Spal en sá leikur hefst klukkan 16:30.
Síðari leikurinn verður viðureign Atalanta og Cagliari og það er ljóst að það er mikið undir í þessum tveimur leikjum.
Spilað verður til þrauta í dag og því mun þurfa framlengingu og mögulega vítaspyrnukeppni ef liðunum tekst ekki að finna sigurvegara eftir níutíu mínútur.
ITALY: National Cup
16:30 Sassuolo - Spal
20:15 Atalanta - Cagliari
Athugasemdir