Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. janúar 2021 07:00
Aksentije Milisic
Tierney hrósar Bellerin: Hjálpað mér ótrúlega mikið
Mynd: Getty Images
Kieran Tierney, bakvörður Arsenal, hefur verið að spila mjög vel með liðinu að undanförnu.

Hann hefur nú sagt frá því hvernig Hector Bellerin hefur haft mjög jákvæð áhrif á feril sinn hjá Arsenal til þessa og hrósa honum í hástert.

Sumarið 2019 kom Tierney til Arsenal frá Celtic en hann kom meiddur. Hann segir að Bellerin hafi komið til hans og sagt við hann að þeir munu verja miklum tíma saman því þeir voru báðir meiddir á þessum tíma.

„Ég vissi hversu stórt nafn hann var og ég fann strax fyrir því hversu góður gæji þetta væri. Hann hjálpaði mér mikið í upphafi þegar ég var meiddur," sagði Tierney.

„Ég sagði alltaf við fjölskylduna mína að Hector myndi hjálpa mér, Hector er að fara með mér út, Hector er að gera hitt og þetta. Þau kunnu að meta það hversu mikið hann hjálpaði mér."

Hann segir að Bellerin hafi haft mestu áhrifin á sig hjá félaginu og það sé honum að þakka hversu vel hann hefur aðlagast.
Athugasemdir
banner
banner