Markvörðurinn goðsagnakenndi Gianluigi Buffon varði mark Juventus í undanúrslitum ítalska bikarsins á fimmtudagskvöldið.
Þar gerði Juve jafntefli við AC Milan og var Daniel Maldini, 18 ára sonur Paolo Maldini, meðal varamanna Milan.
Buffon fékk treyju Maldini að leikslokum, þrátt fyrir að ungstirnið hafi ekki komið við sögu í leiknum. Buffon var spurður út í þetta að leikslokum.
„Ég bætti þessari við safnið mitt. Ég á treyjur frá Chiesa feðgunum, Thuram feðgunum, Weah feðgunum og núna Maldini feðgunum. Ég er að bíða eftir barnabörnunum," svaraði Buffon með bros á vör.
Cruzeiro players try to confuse referee to avoid red card. from r/soccer
Athugasemdir