Fotbolti.net
14.02.21 - 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gylfi einn af „sex skelfilegum" í tapi Everton

Gylfi einn af „sex skelfilegum" í tapi Everton
Canon

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson átti ekki góðan leik að mati staðarmiðilsins <i>Liverpool Echo</I> þegar Everton tapaði fyrir fallbaráttuliði Fulham í kvöld.
Tom Davies fær sex í einkunn en það er hæsta einkunn hjá leikmanni Everton úr leiknum í kvöld.

Fram kemur í fyrirsögn hjá miðlinum að allt liðið hafi verið slakt í leiknum en sex leikmenn sérstaklega slakir.

Þar á meðal er Gylfi sem fær fjóra í einkunn, rétt eins og Ben Godfrey, Mason Holgate, Abdoulaye Doucoure, Andre Gomes og Richarlison.

„Að koma inn fyrir Dominic Calvert-Lewin er alls ekki auðvelt og Sigurðsson komst að því þegar hann byrjaði sem 'fölsk nía'. Þegar leið á leikinn þá átti hann í vandræðum með að hafa einhvers konar áhrif er Fulham tók stjórn á leiknum," segir í umsögn Liverpool Echo.

Sjá einnig:
England: Sunderland 'Til I Die stjarnan sá um Everton
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.