Íslenska kvennalandsliðið mætir Úkraínu í mikilvægum leik í undankeppni heimsmeistaramótsins klukkan 18:30 á Laugardalsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Úkraína
Thelma Karen Pálmadóttir, leikmaður sænska meistaraliðsins Håcken, er í byrjunarliðinu í fyrsta sinn.
Hún gekk í raðir Häcken frá FH eftir síðustu leiktíð og verið að gera frábæra hluti í Svíþjóð.
Glódís Perla Viggósdóttir er á sínum stað í hjarta varnarinnar og með fyrirliðabandið og Cecilía Rán Rúnarsdóttir í markinu. Sveindís er í fremstu víglínu.
Leikurinn er í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net
Byrjunarliðið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
16. Hildur Antonsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
20. Thelma Karen Pálmadóttir
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. England | 3 | 3 | 0 | 0 | 9 - 1 | +8 | 9 |
| 2. Spánn | 3 | 2 | 1 | 0 | 6 - 2 | +4 | 6 |
| 3. Ísland | 3 | 1 | 2 | 0 | 1 - 5 | -4 | 3 |
| 4. Úkraína | 3 | 0 | 3 | 0 | 2 - 10 | -8 | 0 |



