Lið vikunnar í enska - Man Utd á fulltrúa þrátt fyrir tap

Markvörður: Robin Roefs (Sunderland) - Hörkuflott frammistaða þegar Sunderland sigraði Tottenham.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Nico O'Reilly (Manchester City) - Einn besti leikmaður City á tímabilinu. Hefur sýnt mikinn stöðugleika og skilað mörkum. Skoraði í sigrinum gegn Chelsea.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Konstantinos Mavropanos (West Ham) - Hamrarnir unnu Úlfana 4-0 í mikilvægasta leik tímabilsins. Mavropanos var öflugur varnarlega og skoraði tvö mörk að auki.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Mats Wieffer (Brighton) - Hægri bakvörðurinn skoraði tvö mörk gegn Burnley.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Rio Ngumoha (Liverpool) - Þvílíkir hæfileikar í þessum strák. Óhræddur við að keyra á varnarmenn. Leikgleðin skín af honum og hann skoraði frábært mark gegn Fulham.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Alex Scott (Bournemouth) - Lúxus frammistaða og mark gegn Arsenal.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Casemiro (Manchester United) - Frábær frammistaða þrátt fyrir að hafa verið í tapliði. Skoraði og bjargaði á línu. Hefur verið geggjaður síðan það var tilkynnt að hann myndi fara í sumar.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Rayan Cherki (Manchester City) - Uppáhalds leikmaðurinn minn í deildinni. Maður er alltaf spenntur þegar hann spilar. Lagði upp tvö mörk gegn Chelsea.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Noah Okafor (Leeds United) - Skoraði tvennu gegn Man Utd sem gæti reynst gulls ígildi þegar kemur að því að halda sér í deildinni.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Taty Castellanos (West Ham) - Tvö gríðarlega mikilvæg mörk í mikilvægum leik.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Igor Thiago (Brentford) - Kominn með 20 mörk í deildinni. Hvar væri Brentford án Brassans?

Mynd: EPA

Stjórinn: Daniel Farke (Leeds United) - Innilegur fögnuðurinn eftir sigurinn gegn Man Utd segir allt sem segja þarf.

Mynd: EPA


Mynd: BBC



