Egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah verður klár fyrir úrslitaleik Liverpool gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu en þetta sagði hann í viðtali eftir sigurinn á Chelsea í dag.
Salah meiddist á 33. mínútu gegn Chelsea í dag og gat ekki haldið leik áfram en læknateymið tók þá ákvörðun að best væri að taka hann af velli.
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði í viðtali eftir leik að meiðsli Salah væru verri en þau sem Virgil van Dijk hlaut í leiknum. Van Dijk fór af velli eftir venjulegan leiktíma.
Salah náði þó að róa stuðningsmenn félagsins er hann mætti í viðtal eftir leik. Hann var spurður að því hvort hann myndi ná leiknum gegn Real Madrid eftir tvær vikur og svarið var einfalt.
„Auðvitað," sagði Salah en það má þó gera ráð fyrir því að hann verði ekki með gegn Southampton á þriðjudag.
Liverpool á enn möguleika á að vinna fernuna en það þarf ýmislegt að gerast til þess að það gangi upp. Manchester City þarf líklegast að tapa stigum gegn bæði West Ham og Aston Villa.
Athugasemdir