Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 12:19
Brynjar Ingi Erluson
Hrafnhildur Salka fær tveggja leikja bann fyrir hártogið
Kvenaboltinn
Hrafnhildur Salka fer í tveggja leikja bann
Hrafnhildur Salka fer í tveggja leikja bann
Mynd: Valur
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir, leikmaður Vals, verður í leikbanni í næstu tveimur leikjum liðsins eftir að hafa fengið rautt fyrir hártog í 3-2 tapi liðsins Breiðabliki á dögunum.

Atvikið átti sér stað á 18. mínútu leiksins er Barbára Sól Gísladóttir gabbaði Hrafnhildi sem reif í hár hennar og uppskar rauða spjaldið fyrir.

Þetta er í annað sinn á tímabilinu þar sem gefið er rautt spjald fyrir hártog en það gerðist einnig í leik hjá Val og Grindavík/Njarðvík er Maci Teater, leikmaður síðarnefnda liðsins, reif í hár Kimberley Dóru Hjálmarsdóttur.

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur dæmt hana í tveggja leikja bann.

Stjörnumennirnir Jóhann Árni Gunnarsson og Daníel Finns Matthíasson eru komnir í leikbann eftir uppsöfnuð spjöld í Mjólkurbikarnum. Þeir fara í eins leiks bann.

Viktor Örn Margeirsson, leikmaður Breiðabliks, sá rautt spjald í 2-1 sigri Blika á Þrótti í bikarnum. Hann fer einnig í eins leiks bann.
Slapp
banner
banner
banner