Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   fim 14. maí 2026 09:30
Elvar Geir Magnússon
Slot spurður út í sína framtíð - „Hef ekki ástæðu til að trúa öðru“
Arne Slot segir allt benda til þess að hann stýri Liverpool áfram á næsta tímabili.
Arne Slot segir allt benda til þess að hann stýri Liverpool áfram á næsta tímabili.
Mynd: EPA
Salah er bara klár í einhverjar mínútur.
Salah er bara klár í einhverjar mínútur.
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Liverpool, segir að allt bendi til þess að hann verði áfram stjóri liðsins á næsta tímabili. Hann var spurður út í framtíð sína á fréttamannafundi í morgun.

„Þetta er ekki bara mín ákvörðun en ég hef ekki ástæðu til að trúa neinu öðru en að ég verði stjóri Liverpool á næsta tímabili," svaraði Slot.

„Í fyrsta lagi þá er ég samningsbundinn félaginu og svo eftir allar samræðurnar sem við höfum átt þá býst ég ekki við neinu öðru en ég verði áfram. Þannig er mín hlið."

Óvinsældir Slot hafa aukist hratt en Liverpool hefur sem ríkjandi meistari átt mjög erfitt tímabil. Í enskum fjölmiðlum er sífellt verið að orða Xabi Alonso við stjórastöðuna.

Liverpool er ekki búið að innsigla Meistaradeildarsæti en liðið þarf að minnsta kosti þrjú stig úr síðustu tveimur leikjunum; gegn Aston Villa á morgun og Brentford í lokaumferðinni níu dögum síðar.

Salah ekki klár í að byrja
Á fundinum í morgun sagði Slot að Ibrahima Konate gæti verið með í leiknum á morgun.

„Mo Salah verður til taks en bara í einhverjar mínútur. Vonandi getur hann komið inn af bekknum. Alisson æfði með okkur, sjáum til á morgun hvort hann sé klár eða þurfi eina viku í viðbót. Florian Wirtz fékk sýkingu í magann, sjáum til hvort hann verði klár," segir Slot.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp