Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 14. júní 2021 17:53
Brynjar Ingi Erluson
EM: Slóvakar nýttu sér liðsmuninn - Lewandowski kaldur
Milan Skriniar fagnar með félögum sínum í kvöld
Milan Skriniar fagnar með félögum sínum í kvöld
Mynd: EPA
Pólland 1 - 2 Slóvakía
1-0 Wojciech Szczesny ('18 , sjálfsmark)
2-0 Karol Linetty ('46 )
2-1 Milan Skriniar ('69 )
Rautt spjald: Grzegorz Krychowiak ('62, Pólland)

Milan Skriniar, varnarmaður Inter, var hetja Slóvakíu er liðið vann Pólland 2-1 í fyrsta leik liðanna í E-riðli Evrópumótsins í kvöld er þau mættust í St. Pétursborg í kvöld.

Pólland hefur átt í erfiðleikum með að byrja vel á stórmóti á þessari öld en liðið hefur aðeins unnið einn af sex fyrstu leikjum sínum.

Það var engin breyting á því í kvöld. Slóvakar komust yfir á 18. mínútu. Robert Mak fór illa með varnarmenn Póllands, keyrði á milli þeirra og lét svo vaða á nærstöngina en boltinn fór í stöngina og af Wojciech Szczesny og í netið.

Robert Lewandowski náði engan veginn að finna sig í leiknum og var staðan 1-0 fyrir Slóvakíu þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Pólland fékk þó draumabyrjun í þeim síðari er Karol Linetty skoraði þegar aðeins 32 sekúndur voru búnar.

Eftir gott spil fékk Macej Rybus boltann vinstra megin í teignum, Lewandowski náði að draga með sér varnarmennina sem skildi eftir gott pláss fyrir Linetty til að skora af stuttu færi.

Pólverjar fengu ágætis meðbyr eftir markið og náðu að koma sér í fín færi en nýttu ekki. Það var því nokkuð mikið áfall þegar Grzegorz Krychowiak fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt á 62. mínútu fyrir að brjóta á Jakub Hromada.

Sjö mínútum síðar komust Slóvakar yfir með frábæru marki frá Milan Skriniar. Þeir fengu hornspyrnu sem Marek Hamsik skallaði aftur fyrir sig í teiginn, á Skriniar, sem lagði fyrir sig boltann og þrumaði honum í vinstra hornið.

Lokatölur 2-1 fyrir Slóvakíu sem fagnaði sigrinum vel og innilega en ljóst er að Pólland á afar verkefni fyrir höndum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner