„Við megum vera stoltir af strákunum og þeir mega vera stoltir af sjálfum sér. Sérstaklega seinni hálfleikurinn var mjög góður," sagði Arnar Þór Viðarsson, sem stýrði A-landsliðinu, gegn Belgíu í Þjóðadeildinni í kvöld.
Leikurinn endaði 2-1 fyrir Belgíu, en það vantaði marga leikmenn í íslenska liðið. Ísland er núna fallið úr B-deild Þjóðadeildarinnar.
Leikurinn endaði 2-1 fyrir Belgíu, en það vantaði marga leikmenn í íslenska liðið. Ísland er núna fallið úr B-deild Þjóðadeildarinnar.
„Yfir heildina litið var þetta ágætt en við hefðum gjarnan viljað jafna í lokin," sagði Arnar við Stöð 2 Sport.
Arnar stýrði U21 landsliðinu til sigurs gegn Lúxemborg í gær og hefur í raun verið á ferðalagi síðan þá. Hann var valinn í að stýra liðinu eftir að landsliðsþjálfararnir Erik Hamren og Freyr Alexandersson voru sendir í sóttkví í gær.
„Staðan er ágæt en maður er ekkert búinn að sofa neitt mikið. Þetta er búið að vera gaman. Maður náði ekki að fagna sigrinum í gær. Það var strax farið í það að plana eitthvað ævintýri. Þegar KSÍ ákvað að kalla mig heim, þá er það ánægjulegt fyrir mig. Ekki bara fyrir mig, líka fyrir Davíð Snorra og Dodda að taka þátt í þessu verkefni. Þetta er ákveðin reynsla sem við setum í bakpokann."
„Ég kom bara í morgun. Freyr og Erik voru búnir að stilla leiknum upp með Davíð og Dodda. Svo vorum við í sambandi við þá (á meðan leiknum stóð). Þeir lögðu leikinn upp, þeir héldu leiknum gangandi úr boxinu uppi. Við erum bara á línunni til að hjálpa."
Davíð Þór Viðarsson, bróðir Arnars, var sérfræðingur í kringum leikinn fyrir Stöð 2 Sport. Hann lýsti því aðeins hvernig síðastliðinn sólarhringur hefur verið fyrir Arnar.
„Ég held að það hafi verið þannig að hann var í Lúxemborg og svo þegar var ákveðið að hann færi heim til að stýra þessum leik, þá hafi hann keyrt heim til sín til Lokeren. Það var stutt stopp þar og svo tók við 5-6 tíma keyrsla til Luton. Svo var flug frá Luton til Íslands sex um morguninn. Þetta hefur verið áhugaverður sólarhringur svo ekki sé meira sagt," sagði Davíð Þór.
Athugasemdir