Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 14. október 2021 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Hann pakkaði mér saman, því miður"
Icelandair
Kristall svekktur
Kristall svekktur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Celton Biai skellti í lás.
Celton Biai skellti í lás.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristall Máni Ingason átti góðan leik með U21 árs landsliðinu sem tapaði gegn Portúgal í fyrradag. Gestirnir frá Portúgal skoruðu eina mark leiksins en leikur Íslands var góður og var liðið síst lélegra liðið á vellinum.

Kristall var til viðtals á Laugardalsvelli í dag í tilefni af því að liðið hans, Víkingur, spilar bikarúrslitaleik á vellinum á laugardag.

Lestu um leikinn: Ísland U21 0 -  1 Portúgal U21

Sjá einnig:
Kristall Máni: Því miður fyrir þá ætlum við okkur það líka

Celton Biai átti góðan dag í marki Portúgals og leyfði fréttaritari sér að blóta þegar hann spurði Kristal út í markvörðinn.

„Hann var allavega það góður að ég náði ekki að skora. Hann pakkaði mér saman, því miður," sagði Kristall.

„Ég var klárlega ánægður með frammistöðuna í leiknum. Við erum með hörkulið, marga góða leikmenn, teknískir og góðir varnarlega og maður er spenntur fyrir framhaldinu," sagði Kristall.

Sjá einnig:
„Kristall er á góðum stað á sínum fótboltaferli"
Kristall Máni: Því miður fyrir þá ætlum við okkur það líka
Athugasemdir
banner
banner