fim 14. október 2021 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wilshere: Hef ennþá eitthvað að sanna og mikið að gefa
Wilshere
Wilshere
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere hefur verið án félags síðan samningur hans við Bournemouth rann út í sumar. Wilshere hefur æft með uppeldisfélagi sínu Arsenal að undanförnu og ræddi við Sky Sports um stöðu sína.

„Ég elska að vera kominn til baka til Arsenal, sjá nokkur andlit sem maður kannast við og æfa með gæðaleikmönnum," sagði Wilshere.

„Ég er að komast á góðan stað þegar kemur að forminu. Ég mun æfa með Arsenal þangað til í janúar og vonandi kemur einhver áhugi frá öðru félagi. Ég held að það sé ekki möguleiki á því að ég klæðist Arsenal treyjunni aftur, það er nóg fyrir mig að klæðast æfingatreyjunni."

„Mig langar að verða þjálfari í framtíðinni en núna langar mig að spila áfram. Mér finnst ég ennþá hafa eitthvað að sanna og mikið að gefa,"
sagði Wilshere sem er 29 ára miðjumaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner