Það er búið að opinbera byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli í kvöld.
Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá 2-2 jafnteflinu gegn Wales.
Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá 2-2 jafnteflinu gegn Wales.
Logi Tómasson, sem var hetjan í þeim leik, kemur auðvitað inn í liðið fyrir Kolbein Birgi Finsson.
Stefán Teitur Þórðarson og Jón Dagur Þorsteinsson eru í leikbanni og inn fyrir þá koma Mikael Neville Anderson og Arnór Ingvi Traustason.
Mikael Egill Ellertsson kemur þá inn fyrir Willum Þór Willumsson.
Flautað verður til leiks klukkan 18:45.
Athugasemdir