Alfreð Finnbogason og Kolbeinn Sigþórsson byrjuðu saman í fremstu víglínu hjá Íslandi gegn Tyrklandi í Istanbúl.
Alfreð entist þó ekki lengi inn á vellinum þar sem hann þurfti að fara meiddur út af á 45. mínútu eftir að Caglar Söyuncu, varnarmaður Leicester, á Englandi henti honum í grasið.
Alfreð lenti illa á öxlinni og fór hann úr axlarlið.
Það er vonandi að þetta sé ekki alvarlegt, en Skagmaðurinn efnilegi Arnór Sigurðsson kom inn á í hans stað.
Seinni hálfleikurinn fer að hefjast. Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
UPPFÆRT: Vísir.is fékk staðfest að Alfreð fór úr axlarlið.
Úff... Alfreð meiðist á hendi eftir væna byltu frá Caglar Söyuncu. Arnór Sigurðsson kemur inn í hans stað.
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) November 14, 2019
Bein útsending: https://t.co/d6DAZZuOL2 pic.twitter.com/X2REtAFhwM
Athugasemdir