Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 14. nóvember 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - U19 spilar síðasta leikinn í riðlinum
Mynd: KSÍ
Einn leikur er á dagskrá í íslenska boltanum í dag en U19 ára landslið kvenna spilar lokaleik sinn í undankeppni Evrópumótsins.

Ísland er búið að vinna riðilinn eftir að hafa unnið fyrstu tvo leiki sína gegn Liechtenstein og Færeyjum.

Leikurinn gegn Liechtenstein vannst með átta mörkum gegn engu áður en liðið vann Færeyjar örugglega, 4-0.

Ísland er á toppnum með 6 stig, þremur stigum meira en Færeyjar fyrir lokaumferðina en Ísland spilar við Litháen í dag.

Íslenska liðið fer næst í seinni undankeppni til að komast á lokamótið sem fer fram á næsta ári og er þá komið upp í A-deild.

Leikur dagsins:
09:00 Litháen - Ísland
Athugasemdir
banner
banner
banner