Klukkan 19:45 hefst viðureign Manchester United og Wolves í ensku bikarkeppninni. Um er að ræða endurtekin leik þar sem jafntefli var í 'fyrri leik' liðanna. Ekki er framlengt í 'fyrri leik' liða á þessu stigi keppninnar heldur leikinn annar leikur.
Leikurinn á Molineux fór 0-0 um þarsíðustu helgi. Í kvöld er leikið á Old Trafford.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, gerir þrjár breytingar frá sigrinum á Norwich um helgina. David de Gea, Marcus Rashford og Andreas Pereira byrja ekki í dag. De Gea er ekki í leikmannahópnum. Daniel James, Sergio Romero og Mason Greenwood byrja.
Nuno Espirito Santo, stjóri Wolves, gerir eina breytingu á sínu byrjunarliði frá jafnteflinu gegn Newcastle um helgina. John Ruddy er í marinu og Rui Patricio á bekknum.
Þá fer einnig fram viðureign Carlisle og Cardiff á sama tíma.
Byrjunarlið Manchester United: Romero, Wan-Bissaka, Lindelöf, Maguire, Williams, Matic, Fred, Greenwood, Mata, James, Martial.
(Varamenn: Grant, Dalot, Jones, Pereira, Lingard, Chong, Rashford. )
Byrjunarlið Wolves: Ruddy, Dendoncker, Coady, Saiss, Doherty, Jonny, Moutinho, Neves, Adama, Jimenez, Neto.
(Varamenn: Patricio, Bennett, Gibbs-White, Kilman, Vinagre, Ashley-Seal, Rasmussen. )
Athugasemdir