Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. janúar 2020 21:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Messi: Hef aldrei verið heltekinn af því að skora
Mynd: Getty Images
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, er einn besti knattspyrnumaður sögunnar. Hann er markahæsti leikmaður í sögu Barcelona og La Liga.

Hann hefur skorað 432 deildarmörk í 466 deildarleikjum fyrir Barcelona, hvorki meira né minna.

Í viðtali í dag tjáði hann sig um markaskorun: „Ég hugsa minna og minna um að skora mörk," sagði Messi.

„Ég er byrjaður á því að fara aftar á völlinn og vil vera sá sem býr til frekar en sá sem skorar."

„Ég hef aldrei verið heltekinn af því að skora,"
sagði Messi að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner