Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 15. febrúar 2021 20:48
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir úr leik West Ham og Sheff Utd: Lingard bestur
Jesse Lingard var besti maður vallarins
Jesse Lingard var besti maður vallarins
Mynd: Getty Images
Jesse Lingard var valinn maður leiksins í 3-0 sigri West Ham United á Sheffield United í kvöld en hann hefur verið frábær frá því hann kom til félagsins á láni frá Manchester United.

Lingard fékk ekkert að spila fyrir United á leiktíðinni en hefur komið með mikil gæði inn í lið West Ham.

Liðið er nú komið upp í fjórða sæti deildarinnar og hefur hann spilað glimrandi vel. Sky Sports valdi hann sem besta mann leiksins í 3-0 sigrinum í kvöld en hér fyrir neðan má sjá einkunnir leikmanna.

West Ham: Fabianski (7), Diop (7), Dawson (7), Cresswell (7), Coufal (6), Soucek (6), Rice (7), Johnson (7), Lingard (8), Lanzini (7), Bowen (7).
Varamenn: Noble (6)

Sheff Utd: Ramsdale (6), Basham (5), Egan (5), Ampadu (5), Bogle (4), Lundstram (5), Norwood (4), Osborn (6), Stevens (5), McGoldrick (6), Sharp (5).
Varamenn: McBurnie (5), Jagielka (5).
Athugasemdir
banner
banner