Hin hliðin - Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík)


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Erfitt að eiga við Sveindísi.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrirmyndin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikaela aftur til Keflavíkur?

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kristrún Ýr nauðsynleg upp á að halda lífi á eyðieyjunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eva Lind tvíburasystir Anitu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Anita Lind er uppalinn Keflvíkingur sem hefur leikið með Keflavík allan sinn feril. Hún er lykilmaður í Keflavíkurliðinu, lék alla leiki liðsins á síðasta tímabili og var tvisvar í sterkasta liði umferðarinnar. Tímabilið 2022 skoraði hún fjögur mörk í 17 leikjum. Á sínum tíma lék Anita 27 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði fjögur mörk.
Í dag sýnir Anita á sér hina hliðina.

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 10. sæti
Gælunafn: Stundum kölluð Adda af fjöllunni
Aldur: 25 ára á árinu
Hjúskaparstaða: lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnistætt úr leiknum: Spilaði fyrsta leikinn minn með mfl árið 2014 og man voða lítið eftir því
Uppáhalds drykkur: nýji noccoinn annars vatnið
Uppáhalds matsölustaður: Sushi Social
Hvernig bíl áttu: hvítann Kia rio
Áttu hlutabréf eða rafmynt: neib
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: FBI
Uppáhalds tónlistarmaður: Drake og SZA
Uppáhalds hlaðvarp: Crime Junkie
Uppáhalds samfélagsmiðill: instagram og twitter
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: fótbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Eva Lind hún er meistari
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Ég hringi síðar.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Tindastól því það er svo langt í burtu
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Sveindís Jane
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: GMJ
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Melanie á æfingum, galið hröð
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Fanndís Friðriks
Sætasti sigurinn: þegar við unnum Breiðablik heima 1-0 í svakalegum leik
Mestu vonbrigðin: Þegar að við féllum
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Væri til í að fá Mikaelu Nótt til okkar aftur
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Sveindís Jane
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Gylfi Sig allan daginn
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Svo margar
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: verð að segja Gunnsa
Uppáhalds staður á Íslandi: alltaf gott að koma í sveitina á Flugumýri annars er sunny Kef frábær staður
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Var einu sinni toguð niður á hárinu það var rosa skemmtilegt
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Fer alltaf í vinstri sokkinn/skóinn fyrst
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já körfuboltanum
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: stærðfræðin er ekki minn besti vinur
Vandræðalegasta augnablik:
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: Evu Lind því gæti hreinlega ekki farið án hennar, Gunnsu fyndin og ljóska aldrei dauð stund svo Kristrúnu Ýr uppá heilann að gera svo myndum lifa af.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: myndi henda Anitu B, Elfu og Watan að taka söngatriði í British got talent
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Er tvíburi
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju:
Hverju laugstu síðast:
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: upphitun
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja:

Erfitt að eiga við Sveindísi.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrirmyndin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikaela aftur til Keflavíkur?

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kristrún Ýr nauðsynleg upp á að halda lífi á eyðieyjunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eva Lind tvíburasystir Anitu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
