Stefán Teitur Þórðarson er búinn að jafna sig eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir í þar síðustu umferð og var mættur aftur í byrjunarlið Silkeborg er liðið sigraði HB Koege með fjórum mörkum gegn engu í dag. Patrik Gunnarsson var á sínum stað í marki Silkeborg.
Magnus Mattson kom Silkeborg í 2-0 með mörkum á tveggja mínútna kafla en William Madsen minnkaði muninn tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Alexander Lind og Anders Klynge bættu svo við sitt hvoru markinu við í seinni hálfleik.
Silkeborg er komið á topp riðilsins um stundar sakir að minnsta kosti en Viborg getur endurheimt efsta sætið með sigri á Esbjerg en þau mætast núna klukkan 13:00.
Silkeborg 4-1 HB Koge
Athugasemdir