Fotbolti.net
15.06.17 - 22:01
Magnús Þór Jónsson

Ejub: Er ekki viss um líkamlega getu leikmanna

Auglýsing
Ejub: Er ekki viss um líkamlega getu leikmanna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var létt yfir Ejub, þjálfara Víkinga í leikslok 1-1 jafnteflisins við Fjölni í kvöld.



\"Þegar leikurinn klárast 1-1 þá er það kannski sanngjarnt en eftir fyrri hálfleik fannst mér við hafa átt að hafa verið yfir.  Áttum fína möguleika og góð færi, en markið sem við fengum á okkur sorglegt miðað við vinnuna sem við höfum farið í að læra varnarfærsluna.\"
Ejub kom til leiks eftir landsleikjahléið með nýtt leikkerfi í pokahorninu, fimm manna vörn og beitti öflugum skyndisóknum.



\"Ég ætla að vera alveg hreinskilinn.  Ég er bara ekki alveg viss um getu nokkurra leikmanna, sérstaklega líkamlega getu.  Það eru margir laskaðir líka og meiddir.  Svo þegar maður fær leikmenn rétt fyrir mót og það er spilað ört þá eru þeir fljótir að þreytast.  Auðvitað er auðveldara og minna um hlaup að spila svona til baka en mér finnst við þó enn geta bætt varnarleikinn.  Svo breytti ég áherslunum í 4-3-3 í lokin og við vorum fljótir að ná að skipta um áherslur. Ég er rosalega ánægður með framlag þeirra og hausinn eftir þrjá tapleiki í röð, það er ekkert einfalt.\"



Nánar er rætt við Ejub í viðtalinu sem fylgir fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.