Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 20:45
Elvar Geir Magnússon
Lið og leikmaður 8. umferðar - Unnu grannaslaginn og tróna á toppnum
Lengjudeildin
ÍR-ingar eru á toppi Lengjudeildarinnar.
ÍR-ingar eru á toppi Lengjudeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óðinn Bjarkason er leikmaður umferðarinnar.
Óðinn Bjarkason er leikmaður umferðarinnar.
Mynd: ÍR
ÍR vann baráttuna um Breiðholt og trónir á toppi Lengjudeildarinnar eftir að átta umferðum er lokið.

Jóhann Birnir Guðmundsson hefur verið að gera frábæra hluti og er þjálfari umferðarinnar. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson hélt markinu hreinu og Bergvin Fannar Helgason var mjög öflugur í fremstu víglínu.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR:
Óðinn Bjarkason skoraði eina markið í Mjóddinni. Gríðarlegur kraftur í lánsmanninum frá KR á hægri vængnum. Hann skoraði markið sem réði úrslitum og var óheppinn að skora ekki fleiri.



Njarðvík vann 3-1 sigur gegn Þór og er í öðru sæti. Joao Ananias var orkumikill á miðsvæðinu og Valdimar Jóhannsson var á meðal markaskorara.

HK er í þriðja sæti eftir 3-0 sigur á Fjölni. Brynjar Snær Pálsson skoraði og lagði upp. Dagur Orri Garðarsson skoraði eitt og skapaði færi fyrir liðsfélagana. Eiður Atli Rúnarsson er einnig í úrvalsliðinu.

Þróttur er í fjórða sæti en liðið vann 2-0 útisigur gegn Selfossi. Aron Snær Ingason var besti maður vallarins. Rafnar Máni Gunnarsson var maður leiksins þegar Völsungur gerði 1-1 jafntefli gegn Þrótti.

Dennis Nieblas var maður leiksins þegar Grindavík gerði 1-1 jafntefli gegn Fylki.

Fyrri úrvalslið:
7. umferð - Ármann Ingi Finnbogason (Grindavík)
6. umferð - Ívar Arnbro Þórhallsson (Völsungur)
5. umferð - Jóhann Þór Arnarsson (HK)
4. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
3. umferð - Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík)
2. umferð - Ibrahima Balde (Þór)
1. umferð - Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík)
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 8 5 3 0 12 - 4 +8 18
2.    Njarðvík 8 4 4 0 20 - 8 +12 16
3.    HK 8 4 2 2 15 - 8 +7 14
4.    Þróttur R. 8 4 2 2 15 - 11 +4 14
5.    Keflavík 7 3 2 2 15 - 9 +6 11
6.    Grindavík 7 3 2 2 20 - 15 +5 11
7.    Þór 8 3 2 3 18 - 17 +1 11
8.    Völsungur 8 3 1 4 11 - 17 -6 10
9.    Fylkir 8 1 4 3 9 - 12 -3 7
10.    Leiknir R. 8 2 1 5 9 - 21 -12 7
11.    Selfoss 8 2 0 6 6 - 17 -11 6
12.    Fjölnir 8 0 3 5 7 - 18 -11 3
Athugasemdir
banner