Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 15. júlí 2021 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arsenal íhugar að kaupa Abraham
Tammy
Tammy
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur áhuga á að fá Tammy Abraham í sínar raðir frá Chelsea.

Chelsea er að bjóða Abraham út þar sem félagið vill fjármagna kaup á nýjum sóknarmanni. Þetta herma heimildir Daily Telegraph.

Chelsea hefur reynt að bjóða Dortmund Abraham sem hluta af kaupverðinu upp í Erling Braut Haaland og þá hefur liðið einnig boðið Tottenham og Inter Milan að kaupa sóknarmanninn.

Þessi vilji Chelsea til að losa Abraham hefur vakið áhuga hjá Arsenal.

Chelsea metur Abraham á um 40 milljónir punda. Abraham tók þátt í 32 leikjum með Chelsea á síðasta tímabili og skoraði tólf mörk. Hann er 23 ára Englendingur.
Athugasemdir
banner
banner
banner