Heimir Guðjóns: Sá þá pakka saman KA
Auglýsing

Heimir Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Frammistaðan í fyrri hálfleik var mjög góð sóknarlega. Við fórum í þessi svæði sem við vildum fara í og töluðum um fyrir leikinn. Við komumst sanngjarnt yfir og það vantaði bara að koma inn þessu þriðja marki," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari Íslandsmeistara Vals eftir 2-1 sigur á Keflavík á heimavelli í kvöld.
Með sigrinum heldur Valur áfram sex stiga forskoti á toppi deildarinnar en liðið mætir Víkingi í mikilvægum leik í næstu umferð.

Eftir að hafa komist í 2-0 í fyrri hálfleik minnkuðu Keflvíkingar muninn í upphafi seinni hálfleiks.
„Við fengum á okkur klaufalegt mark eftir hornspyrnu og hleyptum þeim inn í leikinn. Sóknarlega vantaði að klára sóknirnar betur á síðasta þriðjung. Annars, heilt yfir fín frammistaða."
„Auðvitað hefðum við viljað ná inn þriðja markinu. Við fáum möguleika til þess sem hefði sennilega klárað leikinn en Keflavíkur liðið er gríðarlega öflugt. Ég sá þá í miðri viku pakka saman KA. Þeir spila virkilega góðan fótbolta og eru með öfluga leikmenn. Þeir hafa sýnt það í sumar að þeir eru erfiðir andstæðingar fyrir alla," sagði Heimir í viðtali við Fótbolta.net.