The Athletic segir að Cristiano Ronaldo borði hádegismat einn í matsalnum á æfingasvæði Manchester United. Ronaldo vill yfirgefa félagið og samherjar hans eru sagðir pirraðir á tilraunum hans til að losna.
Ronaldo tilkynnti félaginu í sumar að hann vildi yfirgefa félagið og spila í Meistaradeild Evrópu.
Ronaldo tilkynnti félaginu í sumar að hann vildi yfirgefa félagið og spila í Meistaradeild Evrópu.
Ronaldo fer ekki leynt með óánægju sína í æfingum og leikjum með líkamstjáningu sinni.
Sögusagnir voru um að United væri að skoða það að rifta samningi Ronaldo ef hegðun hans batnar ekki. Félagið hefur hinsvegar sagt að sá fréttaflutningur sé einfaldlega rangur.
United fer herfilega illa af stað á nýju tímabili og hefur tapað fyrir Brighton og Brentford.
Athugasemdir