Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 15. september 2021 14:30
Elvar Geir Magnússon
De Bruyne og Foden ekki lengur á meiðslalistanum
Phil Foden.
Phil Foden.
Mynd: Getty Images
Manchester City mætir RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Club Brugge og PSG eru hin lið riðilsins og mætast í Belgíu.

Kevin de Bruyne og Phil Foden gætu tekið þátt en þeir hafa jafnað sig af meiðslum.

RB Leipzig endaði í öðru sæti í Þýskalandi á síðasta tímabili en hafa farið illa af stað á þessu undir stjórn Jesse Marsch. Liðið hefur tapað þremur af fjórum leikjum sínum í Bundesligunni

Bakvörðurinn Angelino er búinn að jafna sig af meiðslum og gæti spilað með þýska liðinu gegn sínum fyrrum samherjum í kvöld.

Smelltu hér til að sjá leikjdagskrána í dag
Athugasemdir
banner
banner
banner