fim 15. október 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Adil Rami: Mitt stærsta vandamál er matur
Mynd: Getty Images
Franski varnarmaðurinn Adil Rami segir að ferill sinn hefði mögulega getað verið mikið betri ef hann væri með betri lífsstíl.

Hinn 34 ára gamli Rami er núna á máli hjá Boavista í Portúgal en hann hefur á ferli sínum spilað fyrir félög eins og AC Milan og Marseille, ásamt því að leika 36 A-landsleiki fyrir Frakkland.

Í samtali við Le Fígaro segir hann: „Ég hefði getað átt betri feril ef ég hefði verið með betri lífsstíl."

„Ég fór of mikið út á lífið, var með of mörgum stelpum og ég var ekki mikið að hugsa um þyngdina. Mitt stærsta vandamál var matur. Ég elska að borða mat. Það er synd því þegar ég er í 100 prósent standi þá hræðir enginn sóknarmaður mig."

Rami var í sambandi með Pamelu Anderson, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum Baywatch. Þau slitu sambandi sínu á síðasta ári og var það ekki á góðum nótum.
Athugasemdir
banner
banner
banner