Fotbolti.net
15.11.20 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Rice kemur Mount til varnar: Allir stjórar myndu velja hann

Rice kemur Mount til varnar: Allir stjórar myndu velja hann
Canon

Mynd: Getty Images

Mason Mount hefur fengið gagnrýni frá hluta af stuðningsmönnum enska landsliðsins sem eru ekki ánægðir með hans framlag til liðsins.
Mount byrjaði báða Þjóðadeildarleiki Englendinga í október, þar sem hann skoraði sigurmarkið gegn Belgíu en tókst ekki að skora í tapi gegn Danmörku.

Declan Rice og Jack Grealish, landsliðsfélagar Mount, komu honum til varnar þegar þeir voru spurðir út í gagnrýnina á Mount.

„Það kemur engum hérna á óvart þegar Gareth (Southgate) og Frank (Lampard) velja Mason í byrjunarliðið. Hvaða úrvalsdeildarstjóri sem er myndi velja hann í byrjunarliðið því hann er ótrúlega hæfileikaríkur einstaklingur," sagði Rice.

„Hann er toppleikmaður og þessi gagnrýni sem hann hefur verið að fá er ósanngjörn."

Grealish talaði á svipuðum nótum og sagði meðal annars: „Fólk sem skilur fótbolta veit hversu góður Mason er."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.