16.01.21 - 10:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Özil og Arsenal ná saman um riftun á samningi

Özil er á leið til Tyrklands.

Mynd: Getty Images

Özil er á leið til Tyrklands.

Mynd: Getty Images
Arsenal og Mesut Özil hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi leikmannsins. Þetta segir David Ornstein, blaðamaður <a href="https://theathletic.com/news/mesut-ozil-arsenal-transfer-football-soccer/AurZhJ7PCzav" target="_blank">The Athletic</a>.
Búist er við því að hinn 32 ára gamli Özil ferðist til Tyrklands um helgina og gangi þar frá skiptum sínum til Fenerbahce.
Özil átti að þéna um 7 milljónir punda hjá Arsenal frá þessum tímapunkti, þangað til samningur hans rennur út í júní. Hann og félagið komust hins vegar að samningi um riftun á samningi hans snemma. Ekki kemur fram í grein The Athletic hvað Arsenal þarf að greiða honum mikið.
Özil hefur engan veginn verið inn í myndinni hjá Arsenal á þessu tímabili og nú mun hann leita á önnur mið eftir sjö og hálft ár hjá félaginu.