Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   mán 16. janúar 2023 23:50
Ívan Guðjón Baldursson
Ceballos reif í hárið á Gavi en slapp við spjald
Mynd: EPA

Gavi átti stórleik er Barcelona lagði Real Madrid að velli í úrslitaleik spænska Ofurbikarsins um helgina.


Dani Ceballos, miðjumaður Real Madrid, kom inn af bekknum í síðari hálfleik og var pirraður á Gavi eftir að táningurinn braut af sér. Real var að tapa og átti að fá boltann en Gavi rölti með hann í burtu, eftir að hafa fengið dæmda aukaspyrnu gegn sér.

Ceballos réði ekki við pirringinn og tosaði nokkuð harkalega í hárið á Gavi, sem var skiljanlega ósáttur. Dómari leiksins ræddi við leikmenn og hélt leikurinn áfram, en Ceballos var heppinn að sleppa við rautt spjald.

Gavi var þó sáttari aðilinn að leikslokum eftir 1-3 sigur þar sem hann skoraði og lagði upp fyrir leikhlé eftir gott samstarf við Robert Lewandowski.


Athugasemdir
banner
banner
banner