Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 16. mars 2023 20:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta: Við höfum saknað Jesus
Mynd: Getty Images

Gabriel Jesus er mættur aftur í byrjunarlið Arsenal eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Hann er í byrjunarliðinu sem er að spila gegn Sporting á Emirates í kvöld.


Mikel Arteta stjóri Arsenal er gríðarlega ánægður að fá hann aftur í liðið.

„Við höfum saknað hans, hann er búinn að vera fjarverandi í næstum fjóra mánuði. Við vitum öll að hann breytir einhverju í þessu liði, hann þarf að ná ryþmanum aftur, byrja að skora mörk og smita út frá sér út í liðið það sem hann gerir best, vonandi er hann rétt stilltur í dag," sagði Arteta.

Jesus er með fimm mörk og sex stoðsendingar í 22 leikjum á tímabilinu en hann á enn eftir að skora í Evrópudeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner