Fotbolti.net
16.04.26 - 17:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Valur hefur boðið í Þorvald Smára

Valur hefur boðið í Þorvald Smára
Canon

Mynd: HK

Valur hefur, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, lagt fram tilboð, og það fleiri en eitt, í Þorvald Smára Jónsson.

Þorvaldur Smári er miðjumaður sem fæddur er árið 2008 og er leikmaður HK. HK hefur til þessa sagt nei við tilboðum Vals.

Hann fór í vetur á reynslu til enska úrvalsdeildarfélagsins Sunderland eftir að hafa komið við sögu í ellefu leikjum með HK í Lengjudeildinni í fyrrasumar. Hann lék undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar á síðasta tímabili en Hemmi hélt svo á Hlíðarenda og er í dag þjálfari Vals.
Þorvaldur Smári á reynslu til Sunderland
TENGT EFNI

Þorvaldur Smári á reynslu til Sunderland

Hann lék sína fyrstu unglingalandsleiki í Portúgal á dögunum þegar hann spilaði þrjá leiki með U19 ára landsliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.