Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 16. maí 2022 07:00
Fótbolti.net
Betis leitar að hæfileikum á Íslandi
Mynd: EPA

Spænska stórliðið Real Betis mun dagana 6-8. júní næstkomandi standa fyrir hæfileikaleit á Íslandi í samstarfi við Fraser Sport Management og TFA Dubai.


Frétt á heimasíðu Real Betis um hæfileikaleitina

Hæfileikaleitin fer fram á Malbikstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ, heimavelli Aftureldingar, en leikmennirnir sem taka þátt æfa og spila undir stjórn þjálfara sem koma frá Real Betis á Spáni. Betis er eitt stærsta félagið á Spáni en það vann spænska konungsbikarinn á dögunum.

Drengir á aldrinum 16-23 ára (Fæddir 1999-2006)
geta sótt um að taka þátt í hæfileikaleitinni og þeir sem skara fram úr þar fara til Real Betis til æfinga í desember þar sem þeir spila gegn unglingaliði félagsins. 


Samskonar hæfileikaleit fer einnig fram í Noregi, Filippseyjum og Dubai á þessu ári og bestu leikmennirnir frá þessum löndum fá síðan tækifæri til að heimsækja Betis í desember.

Auk þess munu aðilar frá Noregi og Dubai fylgjast með hæfileikaleitinni á Íslandi og skoða leikmenn sem gætu átt möguleika á að spila í atvinnumennsku erlendis eða í háskólabolta í Bandaríkjunum.

Fraser Sport Management mun til að mynda leita að leikmönnum á Íslandi fyrir sex félög í Noregi.

Drengir á aldrinum 16-23 ára geta sótt um að taka þátt í hæfileikaleitinni en kostnaður er 225 evrur (31,500 krónur) á mann.

Smelltu hér til að skrá þig!


Athugasemdir
banner
banner
banner