Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 16. maí 2022 09:49
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu markið: Hákon með meistaralega afgreiðslu
Mynd: Getty Images
Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrra markið í 2-0 útisigri FC Kaupmannahafnar í mikilvægum leik í dönsku titilbaráttunni í gær. Hér að neðan má sjá hvernig þessi nítján ára leikmaður kláraði færið á fallegan hátt.

Kaupmannahöfn heimsótti Randers og lenti ekki í miklum erfiðleikum. Það var aðeins eitt lið á vellinum og var sigurinn fyllilega verðskuldaður.

Kaupmannahöfn er með sex stiga forystu á toppi deildarinnar og á aðeins eftir að spila heimaleik gegn Álaborg. Jafntefli þar nægir til að tryggja liðinu Danmerkurmeistaratitilinn.


Athugasemdir
banner
banner